Vilt þú vinna
með svart

Við sérhæfum okkur í hönnun, myndvinnslu, lógóhönnun, auglýsingagerð, mynd- og myndbandagerð, hreyfimyndum, sjónvarps- og vefauglýsingum, vefsíðugerð, skiltagerð, umbroti, viðburðahönnun, sviðsgrafík og markaðsefni.

Við setjum hjarta okkar og sál í hvert einasta verkefni og leyfum sköpunargleðinni að flæða frjálst og takmarkalaust.

Fólkið

Ólöf Erla Grafískur Hönnuður

Ólöf Erla Einarsdóttir

Grafískur hönnuður / Hönnunarstjóri

Ólöf Erla útskrifaðist með BA í grafískri hönnun frá LHÍ árið 2002. Hún starfaði hjá RÚV í 11 ár við hönnun og grafík fyrir vef og sjónvarp og vann einnig með mörgum ástsælum listamönnum þjóðarinnar að hönnun hljómplatna, plakata, myndbanda og auglýsinga. Eftir RÚV fór hún til 365 og síðar NOVA áður en hún stofnaði eigið fyrirtæki, SVART, og hóf sjálfstæð störf. Meðfram þessu hefur Ólöf haldið sýningar og skapað ævintýraheima úr hversdagslegum ljósmyndum.

Arna Fríða Ingvarsdóttir

Grafískur hönnuður / Viðmótshönnuður

Arna Fríða útskrifaðist með BA gráðu í grafískri hönnun frá LHÍ árið 2002. Hún hóf feril sinn hjá Latabæ og síðar hjá Húsasmiðjunni og Góðu Fólki. Þá sótti hún vefhönnunarnám í Danmörku og starfaði að því loknu hjá Hugsmiðjunni sem vefhönnuður. Arna hefur einnig unnið á markaðsdeild Smáralindar og síðan áramótin 2022 starfað sjálfstætt með Svart. Hún er reyndur hönnuður og sinnir fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal samfélagsmiðlaefni, hreyfiefni, lógóhönnun, umbroti og vefsíðugerð ásamt fleiru.

Silli Geirdal - Svart auglýsingastofa

Silli Geirdal

Hreyfimyndahönnuður / Tónlistarmaður

Sigurður Geirdal Ragnarsson hefur starfað við grafíska vinnslu frá 1997 og í tónlistariðnaði frá 1999. Hann hefur unnið með listamönnum eins og Sigur Rós, Björk, Damien Rice og Jarvis Cocker, auk viðburða eins og Iceland Airwaves og Eistnaflug. Sigurður hefur verið meðlimur í hljómsveitunum DIMMU, SIGN og Stripshow. Með mikla reynslu úr tónlistargeiranum nýtist hann vel í starfi sínu hjá Svart.

Konráð Grétar Ómarsson, markaðsmaður

Konráð Grétar Ómarsson

Markaðsmaður

Konráð hefur yfirgripsmikla reynslu af sölumennsku, ráðgjafavinnu og markaðsmálum. Hann leggur mikla áherslu á heiðarleika og tryggir að viðskiptavinir hans finni að þeirra málum sé fylgt af alúð og nákvæmni. Undanfarin ár hefur Konráð unnið mikið að þróun og umbótum í umbúðarmálum fyrir matvælaframleiðslufyrirtæki. Hans framlag hefur skipt sköpum í að bæta gæði og hönnun umbúða, sem hefur aukið samkeppnishæfni viðskiptavina hans á markaði.

Hallur Guðmundsson

Hönnuður, textasmiður, þýðandi og þulur

Hallur útskrifaðist með sveinsbréf í prentsmíð / grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1998. Hann hefur unnið hjá DV, Hausverk auglýsingastofu og Víkurfréttum. Árið 2017 útskrifaðist Hallur með B.A. í Miðlun & almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst og árið 2024 með M.Ed gráðu í kennslu list- og verkgreina með tónmennt sem sérgrein úr HÍ. Hallur elskar tónlist, ljósmyndun, kaffi og bjór (svona af og til í hófi). Hallur er síðhærður og stundum með skegg af því hann langar til þess. Svo er hann líka svo ákaflega jákvæður og hress.

Scroll to Top